Uppáhalds

Þar sem ég hef verið í bloggpásu undanfarið og kem til með að verða aðeins áfram ætla ég að setja hérna inn svona einskonar samansafn af uppáhaldsbloggunum mínum af þessari síðu frá seinasta ári. Svona annálsdæmi fattaru.

Ungur gangster

Fyndin týpa

Kveðjustund með pólverja

Brynjar og asíufóbían

Nudd

Nýtt tattoo

Myndablogg1 frá Ástralíu (ath. Mjög langt)

Myndablogg2 frá Ástralíu (ath. Mjög langt)

Stelpur

Home sweet home

Kúka draugar?

Hrós

Snákar í flugvél/lest

Kúkalykt

Brother love

Fyllerís sms

Væminn gaur

Ekki reykja

Rambó

 Þar hafið þið það gott fólk. 19 færslur hvorki meira né minna. Núna ætti fólk að hafa e-ð fyrir stafni


Facebook vs. Blogg

Jesús hvað maður hefur verið slakur að blogga undanfarið. Ég vil kenna facebook alfarið um það. Að blogga getur verið vinna, en að henda inn einni setningu í status update á facebook er einfaldasti hlutur í heimi.

Gott dæmi um status update: Erik Christianson Chaillot var að updeita status update.

Ég lofa þó betrumbótum í þessum bloggmálum. Batnandi mönnum er best að lifa og þó að ég sé kannski ekkert að batna mikið get ég allavega varla versnað mikið upp úr þessu. 

Svo verður tíminn bara að leiða í ljós hvort ég geti ekki verið ögn duglegri að henda einhverju missniðugu hingað inn eins og ég geri svo vel. 

Set hérna í lokin hraðakstursmynd ársins 2007, þó það megi svosem efa hversu raunveruleg hún er.

Hraðakstur 


Hollenskur þáttastjórnandi

Var bent á þetta myndband af hollenskum þáttastjórnanda sem hegðar sér vægast sagt.. tjaaa... perralega gagnvart krakka sem kemur í þáttinn hans. Þetta getur varla talist eðlilegt er það? Horfið á myndbandið til enda.

Þessi maður er semsagt uppistandari og hann var búinn að láta foreldra stráksins vita að hann ætlaði að gera þetta, en hvorki strákurinn né áhorfendur vissu af þessu. Hann vildi sjá viðbrögðin. Fólk virtist ekkert vera að kippa sér mikið upp við þetta, þó að strákurinn hafi verið smá vandræðalegur!


Scolari að skjóta púðurskotum

Nú hafa fótboltaáhugamenn víðsvegar um heiminn verið að keppast við það í vetur að hrósa spilamennsku Chelsea og áhrifum Scolari á liðið. Vilja mjög margir meina að Chelsea séu bara besta liðið á Englandi og muni með þessu áframhaldi vinna deildina, og mögulega fara alla leið í meistaradeildinni.

Ég var mjög hrifinn af ráðningu Scolari og það verður ekki af honum tekið að liðið hefur verið að skora meira af mörkum en venjulega og augljóslega búið að hamra á því við leikmennina að vera sókndjarfir. Einnig er hægt að taka tillit til meiðsla í herbúðum Chelsea sem hafa verið mjög mikil, og svo má ekki gleyma þeirri staðreynd að hann er tvífari Gene Hackman sem er gríðarlega töff. En það bara er ekki nóg!

Það sem ég hef tekið eftir í vetur og hefur verið að valda mér áhyggjum er sú staðreynd að gengi Scolari gegn stórum liðum í vetur og í leikjum sem á reynir hefur verið vægast sagt lélegt. Jújú okkur hefur verið að ganga glimrandi vel gegn lélegum og miðlungsliðunum, en það eru stóru leikirnir sem vinna mót. Við gerðum 1-1 jafntefli heima við United sem var vel sloppið því mér fannst Chelsea spila alveg afleitlega í þeim leik. Svo kom að vísu 1-0 heimasigur gegn Roma í meistaradeild sem verður að viðurkennast að var heppnissigur. Þá var komið að heimaleik gegn Liverpool þar sem hið magnaða heimavallarmet Stamford Bridge var slegið í 1-0 tapi sem voru mjög sanngjörn úrslit, eins ótrúlega og það hljómar. 9 dögum seinna tók við líklega versta frammistaða sem ég hef séð til Chelsea er þeir töpuðu 3-1 fyrir Roma úti í Ítalíu. Já svo má ekki gleyma tapinu í kvöld fyrir Burnley í Carling Cup. Burnley verður kannski seint talið stórt lið en ég flokka þennan leik samt sem ágætlega stóran þar sem þetta er í útsláttarkeppni. Kommon Ade fokking Akinbiyi skoraði, maðurinn var eitt sinn valinn lélegasti leikmaður úrvalsdeildarinnar frá upphafi!

Það þykir mér því nokkuð ljóst að Scolari virðist ekki alveg vera að takast það að peppa menn upp í erfiðu leikina, hann er ekki að taka þessar frábæru hálfleiksræður, sem einkenna góðu stjórana, sem sjá leiki snúast gjörsamlega við. Hann hefur ekki verið að gera þessar gamechanging skiptingar sem maður sá José Mourinho gera trekk í trekk, og meirað segja Avram "Svarthöfða" Grant í þónokkur skipti! Scolari hefur ítrekað verið að setja samlanda og samkuntu sína hann Belletti inná þegar illa gengur og ætlast til þess að hann snúi blaðinu við, núna síðast gegn Roma þar sem hann tók Joe Cole útaf f hann. Þó að Belletti eigi það til að skora úr langskotum á maðurinn engan vegin heima í einu best mannaða liði heims. Hann væri líklega fínt cover fyrir Mario Melchiot hjá Wigan í hægri bakvörðinn.

Núna eru sirka 2 og hálf vika í heimaleik gegn Arsenal sem ég er að verða býsna svartsýnn og kvíðinn fyrir. Eftir áramót fáum við svo öll stóru liðin úti, en miðað við árangurinn heima til þessa gegn stóru liðunum er það ekki mikið tilhlökkunarefni. Ég veit það vel að það er fullhart hjá mér að segja að það eigi að reka Scolari enda erum við efstir í deildinni. En þessi byrjun í stóru leikjunum finnst mér ekki lofa góðu og ég er svona nokkurnvegin viss um að undir Scolari munum við ekki vinna stærstu titlana. Ég skal samt GLAÐUR éta þau orð ofan í mig.

Erik segir: Scolari Endar í 2.sæti með Chelsea í deild og dettur út í 16/8 liða úrslitum meistaradeildarinnar og verður rekinn eftir tímabilið. Scolari þú ert drekinn. (sjá link)

Drekinn


10 þús kjéééll

Maður myndi ekkert hata það að fá einn svona f helgina.

10 þúsund kjééll

Hversu spaðalegt væri að flagga einum svona á barnum um helgina?!
Blæði á línuna! 

Ps. Fyrir þá sem misstu af fréttinni um þennan seðil, ýtið hér


Kosningarvaka

Klukkan er rúmlega 04:00 og maður liggur hérna f framan sjónvarpið að fylgjast með þessum blessuðu kosningum sem virðast stefna í ágætlega öruggan sigur Obama. Uppfært: Hann vann.

Mig langar samt að sýna eitt örstutt myndband af þessum ágætu forsetaframbjóðendum. 
Er þetta mjög þroskað?
  

Ég gat ekki annað en hlegið að þessu. Flottar týpur, sérstaklega sá stutti. Eigum við samt e-ð að ræða hvað það verður mikið að gera hjá mbl.is bloggurunum á morgun? Þeir þurfa að tjá sig um allt og alla og svona stórar fréttir verða vissulega engin undantekning á því.


Rambó

Ég var að horfa á Rambó í gær og fór að pæla. Hvað myndi Rambó heita ef hann væri íslenskur?

A) Róbert

B) Rögnvaldur

C) Rannver

D) Ráðvarður

E) Erik

Ég hallast að lið C. Ímyndið ykkur.

 Rannver!

Meistari Rannver

 Ég sé þetta alveg fyrir mér. Annars eru þetta svosem allt ágætis möguleikar.


Ein krefjandi fyrir helgina.

Erik.blog.is skellti sér í tívolí um daginn og fann ekki Valla.

Getur þú hjálpað? Hvar er Valli?

Valli

 Góða helgi.


Snillingur vikunnar

Snillingur vikunnar er enginn annar en Gulli félagi minn, betur þekktur sem Gulli Kúla.

Hann hefur löngum státað sér af því að vinna í bláa lóninu og talað um hversu mikið hann elski lónið. Núna fyrir helgi tók hann svo upp á því keyra bílnum sínum ofan í bláa lónið á leið sinni í vinnuna.

Hér er mynd af atvikinu. Vel gert Gulli!

Bíllinn í lóninu

Hvað er aftur orðið þarna? ... já nú man ég... LOL.


Þetta finnst mér fyndið

Þá er þetta hræðilega 10 daga blogg lokunar tímabil mitt sem stóð frá 17 til 27 október afstaðið. Ég vil ekki vera að henda neinum sleggjum í loftið en fólk hefur verið að líkja þessu slæma tímabili við stjórnartíð Bush, kreppuna, fasismastjórn Mussolini á Ítalíu og að sjálfsögðu tímabilið þegar allir hlustuðu á Limp Bizkit og héldu að Fred Durst væri svalur.

En þá að máli málanna. Ég prófaði að gúgla sjálfan mig um daginn. Mest af því sem kom upp voru linkar á bloggið mitt, e-ð fótboltatengt og auðvitað mbl.is forsíðufréttir.

En ég rakst á einn helvíti fyndinn link, eða mér finnst hann allavega fyndinn, en þetta er bloggsíða hjá einhverjum eflaust ágætum dömum. Þessi færsla er frá árinu 2006 en ég hvet fólk til að lesa kommentin þar sem að þau eru frekar skondin.

Til að sjá bloggið ýttu hér

Ef ég bara hefði séð þetta árið 2006 þá hefði maður kannski verið vaðandi í kvennfólki at the time! Kannski að maður fari að snoða sig aftur? Já og fara aftur í KR...


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband